Silfurslétta 5, snyrtilegt og gott iðnaðar/geymsluhúsnæði í iðnaðarhverfinu á Esjumelum (póstnúmer 162) í Reykjavík. Um er að ræða stálgrindarhús byggt árið 1997. Grunnflötur húsnæðisins er skráður 55,2 fm. í fasteignaskrá HMS, en til viðbótar er nýlega innréttað u.þ.b. 40 fm. milliloft, þar sem er eldhús, skrifstofu- og kaffistofu aðstaða, snyrting og geymsla (óskráð rými). Alls er húsnæðið því um 95 fm. að gólffleti með óskráða milliloftinu. Endurnýjaðar vatns- og raflagnir að hluta að sögn eiganda. Góður timburstigi á efri hæð, sem er snyrtileg, að mestu parketlögð. Þar er skrifstofa/kaffistofa með eldhúsinnréttingu. Snyrting með innréttingu og baðkari. Einnig ágæt skrifstofa/herbergi. Gott geymsluloft undir súð.
Góðar innkeyrslu- og göngudyr eru á húsinu, 3ja fasa rafmagn og ágæt malarborin aðkoma. Kynding með hitaveitu - gólfhiti á neðri hæð.
Ágætt geymslupláss á lóð.
Húsnæðið er ekki með vsk. kvöð.
Eignin getur verið laus mjög fljótlega.
Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgf.
[email protected] eða í síma 894-7070