Falleg 110,2 fm. 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi af svölum í nýlegu (2019) fallegu steinsteyptu lyftuhúsi sem er einangrað að utan og klætt með liggjandi álklæðningu. Gluggar á þrjár hliðar og stórar og skjólgóðar svalir. Sérgeymsla á jarðhæð. Í endum hússins eru einungis 2 hæðir og því er engin íbúð yfir þessari eign. Aðgengi fyrir fatlaða um lyftuhús.Nánari lýsing: Komið er á parketlagða
forstofu með 3x fataskápum. Parketlagt
hol/gangur. Af honum eru
tvö rúmgóð barnaherbergi með skápum. Gluggar á tvær hliðar í öðru þeirra.
Baðherbergið er rúmgott, flísalagt með walk in sturtu, innréttingu, handklæðaofni, og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofan og eldhúsið eru í einu rúmgóðu og björtu parketlögðu rými með glugga á tvær hliðar.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu frá HTH, og AEG tækjum. Uppþvottavél og ísskápur fylgja. Gluggahlið á stofunni og útgangur á stórar (14 fm.) innfelldar svalir með "grillskoti".
Hjónaherbergið er parketlagt með 4x skápum og stórum glugga.
Á jarðhæð er rúmgóð
sérgeymsla með reiðhjólahengjum á vegg.
Annað: Rúmt er um húsið og gott útsýni úr íbúðinni. Varmaskiptir og húsið einangrað að utan og klætt með liggjandi álklæðningu (smábára). Næg bílastæði og rafhleðslustöð við húsið. Hiti í stéttum. Gæludýr eru velkomin í húsinu að sögn seljenda.
Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgfs.,
[email protected] eða í síma 894-7070.