Birkilundur 8, 320 Reykholt í Borgarfirði
19.800.000 Kr.
Lóð/ Sumarhúsalóð
0 herb.
0 m2
19.800.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.250.000

Fasteignasalan Miðborg kynnir eignina Birkilundur 8, í Húsafelli Borgarfirði, fasteignanúmer F2334498.

Um er að ræða afar glæsilega og vel staðsetta 1.250 fm. eignarlóð ásamt púða og samþykktum teikningum af 127,1 fm. frístundahúsi á einni hæð.  Húsið er teiknað af teiknistofunni TAG með einhalla þaki og skiptist í forstofu, hol/gang, stofur, eldhús, tvö baðherbergi og þrjú svefnherbergi, þar af hjónasvíta með sérbaðherbergi.  Íbúðarhluti hússins er 118,5 fm. og geymsla 8,6 fm.  Húsið er teiknað sem timburhús, en einnig er möguleiki á að reisa húsið úr forsteyptum einingum.  Gert er ráð fyrir gólfhitakerfi í steyptri plötu.  Salarhæð við suðurhlið er ca. 3,9 m.  Gólfsíðir gluggar á suður- og vesturhliðum.

Rafmagn, kalt vatn og hitaveita við lóðarmörk.  Einstakur staður í þessari náttúruparadís sem Húsafell er.  Kjarri vaxið hraun, sundlaug, verslun, hótel og golfvöllur er á svæðinu.  Stutt á Langjökul, Arnavatnsheiði, að Hraunfossum, Víðgelmi og fleiri náttúruperlum.  Seljandi hefur möguleika á að reisa húsið fyrir væntanlega kaupendur.

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.