Gullfallegt 272,6 fm. parhús með tveimur aðskildum íbúðum. Einstök staðsetning og glæsilegt útsýni. Á efri hæð er 3ja herbergja íbúð með sér inngangi. Á neðri hæð er 4ra herbergja íbúð með sérinngangi (lokað er á milli hæða). Gólfhiti á báðum hæðum. Góður bílskúr með geymslulofti. Við húsið eru tvær mjög góðar upphitaðar geymslur (skráðir gámar á lóð) og mjög falleg lóð skipulögð á glæsilegan máta hönnuð af landslagsarkitekt. Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 272,6 fm þ.a er íbúð á neðri hæð 124,6 fm. Íbúð á efri hæð er skráð 94,7 fm, bílskúr er skráður 23,4 fm, geymslur á lóð eru skráðar 29,9 fm.
Nánari lýsing efri hæðar: Guðrún Atladóttir innanhússarkitekt hannaði glæsilega 3ja herbergja sérhæð sem skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi og bílskúr. Komið er á flísalagða
forstofu, góðir skápar. Af forstofu er parketlagt
svefnherbergi með skápum. Frá forstofu er gengið í hol. Glæsilegt
eldhús með stórri eldaeyju opið við bjarta stofu og borðstofu, uppþvottavél, nýlegur bakarofn, parket á gólfum. Rúmgóð
stofa með mikilli lofthæð og innfelldri lýsingu og útgengi á svalir. Parketlagt
svefnherbergi með góðum 6x fataskápum, útgengt á svalir. Fyrir ofan svefnherbergi er
geymsluloft. Baðherbergið er flísalagt, innrétting við handlaug og sturta, góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Sérsmíðaðar innréttingar, steinn á öllum borðflötum og gluggakistum, hvíttað parket á gólfum.
Nánari lýsing neðri hæðar: Falleg 4ra herbergja sérhæð sem skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús og geymslu undir stiga. Komið er á flísalagða
forstofu, þar er gott skápapláss og haganlega komið fyrir Þvottavél og þurrkara. Frá forstofu er komið á
hol sem er opið að
eldhúsi með fallegri hvítri innréttingu og borðstofu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Frá holi er einnig gengið inn í
stofu og
þrjú mjög rúmgóð herbergi. Úr stofunni og einu herbergjanna er útgengt í garðinn. Parket á gólfum. Neðri hæðin hefur verið mikið endurnýjuð á sl. árum.
Bílskúrinn er snyrtilega innréttaður með geymslulofti. Lóðin er skemmtilega útfærð á vandaðan máta. Lagnir fyrir heitan pott eru í garði. Útbúin hefur verið stór tvöföld geymsla (inngrafnir gámar) sem falla inn í landslagið. Flísalagðir frontar, hiti, rafmagn og gönguhurðir. Á þaki geymslunnar er mjög góður afgirtur pallur sem tengist sróru steyptu bílaplani með 6 bílastæðum og snjóbræðslu (lokað kerfi).
Falleg eign, með mikla nýtingarmöguleika á einstökum stað.
Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgf. í síma 894-7070 eða
[email protected]